Fjölbreyttar framkvæmdir og fjárfestingar fram undan í Snæfellsbæ
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar bauð til opins íbúafundar í Félagsheimilinu Klifi þriðjudaginn 17. nóvember.
Á fundinum var farið yfir helstu verkefni og framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru á vegum sveitarfélagsins næstu fjögur árin. Ljóst er að umsvifin verða mikil og ráðist verður í fjölbreytt verkefni sem miða að því að bæta þjónustu, efla innviði og auka lífsgæði íbúa.
Góðar umræður sköpuðust á meðal fundargesta og er þeim þakkað fyrir gott samtal og þarfar ábendingar.
Meðal helstu verkefna sem voru kynnt á fundinum voru:
- Nýr slökkviliðsbíll: Snæfellsbær hyggst fjárfesta í nýjum slökkviliðsbíl fyrir um 90 milljónir króna. Áætlað er að fara í útboð árið 2027 og að bíllinn verði afhentur árið 2028. Fjárfestingin er mikilvægur liður í að efla öryggi íbúa og viðbragðsgetu slökkviliðsins.
- Íbúðir fyrir eldri borgara: Stefnt er að því að hefja framkvæmdir við byggingu sex íbúða fyrir 60 ára og eldri í Ólafsvík árið 2027. Gert er ráð fyrir að framkvæmdin standi yfir 2027 og 2028. Áætlaður kostnaður er 800 milljónir króna. Um er að ræða mikilvægt lífsgæðaverkefni sem mun skapa eldri íbúum aukin búsetuúrræði og tækifæri til að búa áfram í sínu nærumhverfi. Jafnframt verður þrýst á ríkið um að stækka hjúkrunarheimilið inn á lóð Átthagastofunnar, enda er mikil þörf á fleiri hjúkrunarrýmum á Jaðri, en það getur tekið töluverðan tíma að fá í gegn slíka framkvæmd. Hér má lesa frétt um lífsgæðakjarnann frá 07.05.2026.
- Viðbygging við bókasafn og tónlistarskóla: Fyrirhugað er að ráðast í viðbyggingu við bókasafnið og tónlistarskólann með áætluðum kostnaði upp á 250 milljónir króna árið 2029. Með framkvæmdinni verður aðstaða til menningar- og tónlistarnáms efld. Hér má lesa frétt um framkvæmdina frá 15.05.2026.
- Nýtt almenningssalerni á Arnarstapa: Fyrirhugað er að byggja nýtt almenningssalerni á Arnarstapa árið 2030, en áætlaður kostnaður er 80 milljónir króna. Framkvæmdin mun bæta aðstöðu og þjónustu við fjölmarga gesti svæðisins.
- Framkvæmdir við hafnir Snæfellsbæjar: Fyrirhugaðar eru umfangsmiklar framkvæmdir á vegum Hafnarsjóðs Snæfellsbæjar, en áætlað er að fjárfestingar hans nemi um 1,3 milljörðum króna á sama tímabili.
Auk þessara stærri framkvæmda verður ráðist í ýmis önnur verkefni. Þar má nefna uppsetningu varmadæla við skólabyggingar með það að markmiði að auka orkunýtni og draga úr rekstrarkostnaði, almennt viðhald á húsnæðum og götum sveitarfélagsins, áframhaldandi uppbygging á leiksvæðum og skólalóðum. Þá verður unnið að því að koma upp hleðslustöðvum við fjölbýlishús og opinberar byggingar í samstarfi við rekstraraðila.
Fram undan eru því viðburðarík framkvæmdaár þar sem lögð verður áhersla á öryggi, bætta þjónustu, sterka innviði og aukin lífsgæði íbúa Snæfellsbæjar.