Rafrænt klippikort á gámastöð
Þann 1. febrúar 2026 tók Snæfellsbær upp nýtt fyrirkomulag á móttökustöð Snæfellsbæjar við Ennisbraut í Ólafsvík og byrjaði að nota rafræn klippikort við móttöku sorps.
Rafræna kortið veitir aðgang að móttökustöðinni. Hver fasteignaeigandi og sumarhúsaeigandi í Snæfellsbæ, sem greiðir sorphirðugjald, fær 12 eininga kort endurgjaldslaust til að nota yfir árið.
Hvernig á að nálgast kortið?
Skráðir greiðendur fasteigna sótt kortin sín inn á vefsíðuna jokulkort.is. Kortið er vistað í rafrænu veski í símtækjum, Apple Wallet og Samsung Wallet.
Skráðir greiðendur fasteigna geta sent kort í fleiri síma, t.d. ef annar en greiðandi fasteignar fer með sorp á móttökustöð.
Þeir aðilar sem ekki eru með rafrænt veski geta nálgast eintak í Ráðhúsi Snæfellsbæjar á opnunartíma.
Nokkur atriði:
- Kortin eru sótt á jokulkort.is.
- Notandi notar rafræn skilríki til að innskrá sig.
- Skráðir eigendur fasteigna geta sótt kort sér að kostnaðarlausu. Sá sem sækir kort verður að vera greiðandi fasteignagjalda.
- Kortið er vistað í rafrænu veski viðkomandi símtækis.
- Hægt er að deila rafrænu korti áfram, t.d. ef annar en eigandi fasteignar fer með sorp á móttökustöð, húsnæði er í leigu o.s.frv.
- Þeir aðilar sem ekki eru með rafrænt veski geta nálgast eintak í Ráðhúsi Snæfellsbæjar á opnunartíma.
Nánari upplýsingar veitir Smári Jónas Lúðvíksson í síma 433-6900 eða á netfanginu smarijonas@snb.is.
Nánar: