Sundlaug Snæfellsbæjar
Opið:
Sundlaugin er opin frá kl. 07:30 - 21:00 á virkum dögum og frá kl. 10:00 - 17:00 um helgar.
Sundlaug Snæfellsbæjar í Ólafsvík er notalegur og fjölskylduvænn staður þar sem hægt er að njóta sunds, slökunar og samveru í fallegu umhverfi. Sundlaugin er mikilvægur hluti af íþrótta- og frístundastarfi í Snæfellsbæ og stendur íbúum og gestum til boða allt árið um kring.
Í sundlauginni er góð aðstaða fyrir fjölskyldur, einstaklinga og sundlaugargesti á öllum aldri. Þar á meðal má finna:
- 25 metra innilaug
- Heitan pott innandyra
- Kaldan pott innandyra
- Glæsilega vatnsrennibraut utandyra
- Vaðlaug með barnarennibraut utandyra
- Heita potta utandyra
- Kaldan pott utandyra
- Gufubað
- Infrarauða gufu
Sund, slökun og samvera
Sundlaug Snæfellsbæjar er mikilvægur samkomustaður í samfélaginu. Þar gefst fólki tækifæri til að hreyfa sig, slaka á og eiga góða stund saman. Fyrir gesti Snæfellsbæjar er sundlaugin jafnframt góður kostur eftir dag í útivist og ferðalögum um Snæfellsnes.
Við hvetjum íbúa og gesti til að nýta sér þá aðstöðu og þjónustu sem sundlaugin hefur upp á að bjóða og njóta þess sem hún hefur að geyma – hvort sem markmiðið er að taka góðan sundsprett, fá sér afslappandi stund í heita pottinum eða einfaldlega eiga notalega samverustund.
Sundkennsla
Sundlaugin sjálf er einnig nýtt fyrir sundkennslu og er því lokuð almenningi á vissum tímum yfir vetrartímann þegar kennsla stendur yfir.
Útisvæði er þó alltaf opið almenningi. Hægt er að fara í heita potta úti og vaðlaug þótt sundkennsla standi yfir.
Reglur
- Athugið að börnum yngi en tíu ára er óheimilt að fara í sund nema í fylgd með syndum einstaklingi sem er fimmtán ára eða eldri. Ábyrgðarmaður tekur fulla ábyrgð á barni og fylgir því alltaf hvort sem er í lauginni eða í pottunum.
- Afsláttarkort gilda hvort tveggja í sundlaugina í Ólafsvík og Lýsulaugar.
Lýsulaugar
Gjaldskylda fellur niður við 67 ára aldur og miðast við afmælisdag. Öryrkjar eru ekki gjaldskyldir gegn framvísun á skírteini Tryggingastofnunar ríkisins.
Afsláttarkort gilda hvort tveggja í sundlaugina í Ólafsvík og Lýsulaugar.