Heilsuefling eldri íbúa

Regluleg hreyfing gegnir lykilhlutverki þegar kemur að andlegri og líkamlegri heilsu. Snæfellsbær hefur ríkan metnað fyrir því að gera vel við íbúa og í sveitarfélaginu er lögð áhersla á fjölbreytta heilsueflingu fyrir íbúa sem hafa náð 60 ára aldri.

Snæfellsbær veitir jafnframt elli- og örorkulífeyrisþegum líkamsræktarstyrk að upphæð 3.000 krónum á mánuði gegn framvísun kvittunar frá líkamsræktarstöð og niðurgreiðir árskort sama hóps í sundlaugina í Ólafsvík.

Hér að neðan má finna upptalningu á námskeiðum ætluðum eldri íbúum í Snæfellsbæ.

Eðalhreysti

Námskeið stendur í fjórar vikur í senn allan ársins hring að undanskildum sumarmánuðum.

Námskeiðið er kennt á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 10:30 - 11:15 í íþróttahúsi Snæfellsbæjar í Ólafsvík.

Eðalhreysti er ætlað einstaklingum 60 ára og eldri þar sem unnið er með styrktarþjálfun, þolæfingar, liðleika og teygjur.

Þjálfari er Anna Þóra Böðvarsdóttir, lærður jógakennari.

Einstaklingar í Félagi eldri borgara í Snæfellsbæ fá námskeiðsgjald niðurgreitt að hluta frá Snæfellsbæ.

- Mynd

Sundleikfimi eldri borgara

Það er ávallt líf og fjör hjá eldri borgurum í sundlauginni í Ólafsvík. Hópurinn hittist tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum.

Tímarnir eru á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 10:00 - 11:00.

Eftir sund er boðið upp á kaffi og heimsmálin rædd í heita pottinum.

Tímarnir eru undir handleiðslu Suad Begic.

Boccia

Hópur eldri borgara hittist í íþróttahúsi Snæfellsbæjar þrisvar í viku og spilar boccia.

Tímarnir eru á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum frá kl. 11:00 - 12:00.

Ganga í íþróttahúsi

Eldri borgurum stendur til boða að koma inn í íþróttahúsið í Ólafsvík hvenær sem er á opnunartíma og ganga sér til gagns og gamans að því gefnu að salurinn sé laus.

Það er ávallt heitt á könnunni og kandís í boði í íþróttahúsinu.

- Mynd

Getum við bætt efni þessarar síðu?