Heilsueflandi samfélag

Snæfellsbær er stoltur aðili að heilsueflandi samfélagi.

Snæfellsbær varð formlega aðili að heilsueflandi samfélagi (HSAM) þann 20. mars 2023, þegar Kristinn Jónasson, bæjarstjóri, og Alma D. Möller, landlæknir, undirrituðu samning þess efnis í Ráðhúsi Snæfellsbæjar á Hellissandi. Viðstaddir voru aðilar úr bæjarstjórn og HSAM stýrihópi sveitarfélagsins þar sem eiga fulltrúa grunnskóli og leikskóli Snæfellsbæjar, íþrótta- og æskulýðsnefnd, velferðarnefnd og atvinnuveganefnd.

Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags

Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að vinna með markvissum hætti að því að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Í slíku samfélagi er heilsa og líðan íbúa í fyrirrúmi í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum. Með innleiðingu heilsueflandi samfélags vinna sveitarfélög einnig m.a. að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Með undirritun samningsins bættist Snæfellsbær í hóp þeirra sveitarfélaga sem hafa haft frumkvæði að því að skuldbinda sig til að efla lýðheilsu og lífsgæði íbúa sinna á markvissan hátt. Myndaður var þverfaglegur stýrihópur í Snæfellsbæ sem heldur utan um verkefnið:

Stýrihópur:

  • Jóhanna Jóhannesdóttir, f.h. íþrótta- og æskulýðsnefndar
  • Alma Clausen, f.h. grunnskóla Snæfellsbæjar
  • Hermína K. Lárusdóttir, f.h. leikskóla Snæfellsbæjar
  • Gunnhildur Kristný Hafsteinsdóttir, f.h. velferðarnefndar
  • Eiríkur Böðvar Rúnarsson, f.h. atvinnuveganefndar

Varamenn stýrihóps:

  • Kristgeir Kristinsson
  • Vilborg Lilja Stefánsdóttir
  • Linda Rut Svansdóttir
  • Auður Kjartansdóttir

Tengiliður stýrihóps er íþrótta- og æskulýðsfulltúi Snæfellsbæjar.

Getum við bætt efni þessarar síðu?