Leikskóli Snæfellsbæjar
Krílakot: Brúarholt 9 í Ólafsvík
Kríuból: Naustabúð 17 á Hellissandi
Í Snæfellsbæ er góður leikskóli þar sem lögð er áhersla á skapandi leik og starf.
Leikskóli Snæfellsbæjar hefur tvær starfsstöðvar, Krílakot í Ólafsvík og Kríuból á Hellissandi, og velja foreldrar hvor starfsstöðin henti þeim. Á leikskólanum er 101 pláss og geta börn að jafnaði fengið pláss við 12 mánaða aldur.
Einnig er rekið leikskólasel í Grunnskóla Snæfellsbæjar að Lýsuhóli sem þjónar börnum í dreifbýlinu í sunnanverðum Snæfellsbæ.
Leikskólastjóri:
Leikskólastjóri er Hermína Kristín Lárusdóttir. Netfang hjá henni er hermina@snb.is.
Símanúmer í Ólafsvík: 433 – 6925.
Símanúmer á Hellissandi: 433 – 6926.
Leikskóladagatal
Skóladagatal er gefið út fyrir veturinn. Sumarlokun leikskóla Snæfellsbæjar 2027 er frá 5. júlí 2027 - 13. ágúst, báðir dagarnir meðtaldir.
Deildir í leikskólanum
Vinsamlega athugið að unnið er að því að uppfæra neðangreindar upplýsingar.
Deildarskipting í leikskólanum tekur mið af aldri barna, þörfum þeirra og skipulagi leikskóla. Markmiðið er að skapa öruggt og uppbyggilegt umhverfi þar sem börn fá tækifæri til leiks, náms og félagslegra samskipta.
Fjöldi barna á deildum og skipulag þeirra getur verið breytilegt frá ári til árs, meðal annars með hliðsjón af fjölda barna og aldurssamsetningu.
Nánari upplýsingar um deildarskiptingu má finna hér að neðan.
Gula deildin
Hér koma upplýsingar um gulu deildina.
Rauða deildin
Hér koma upplýsingar um rauðu deildina.
Sólberg
Hér koma upplýsingar um Sólberg.
Stubbakot
Hér koma upplýsingar um Stubbakot.
Sæból
Hér koma upplýsingar um Sæból.
Skólastarfið
Stuttur inngangur í texta um skólastarfið
Heilsueflandi leikskóli
Hér kemur texti
Jákvæður agi
Hér kemur texti
Leikur að læra
Leikur að læra er kennsluaðferð þar sem börnum á aldrinum tveggja til tíu ára eru kennd öll bókleg fög í gegnum leiki, hreyfingu og skynjun á skipulagðan, líflegan og árangursríkan hátt.

Meiri hreyfing, betri líðan, betri einbeiting
Kennari sem hefur tileinkað sér kennsluhætti Leikur að læra fer að hugsa námsefnið út frá öðru sjónarhorni – frá sjónarhorni barna og þörf þeirra til að hreyfa sig. Með því að nota aðferðir Leikur að læra höfum við áhrif á andlega og líkamlega heilsu nemenda okkar til framtíðar. Þau venjast því að standa upp og hreyfa sig reglulega og sjá að það er viðurkennt að við lærum á mismunandi hátt.
Foreldrasamstarf - gaman saman
Leikur að læra leggur mikið upp úr góðu samstarfi við foreldra í gegnum foreldraverkefni, heimavinnu, bekkjarkvöld og fleira. Þessir þættir stuðla að því að gera foreldra meðvitaða um nám barna sinna og mikilvægi góðrar samvinnu milli heimili og skóla.
Leikur að læra er ekki ein bók, eitt spil eða ein námsgrein. Leikur að læra er kennslustíll sem hentar með öðrum kennsluaðferðum i ólíkum fögum.Leikur að læra-menntar heiminn á hreyfingu.
Lubbi finnur málbein
Lubbi er íslenskur fjárhundur. Hann er duglegur að gelta og þá heyrist ,,voff - voff." En Lubba langar mikið til að læra að tala. Þá þarf hann að læra öll íslensku málhljóðin. Hann veit að þegar hann hefur lært þau öll losnar um málbeinið og hann getur leyst frá skjóðunni. Hann hefur örugglega frá mörgu að segja.
En hvernig getum við hjálpað Lubba að læra íslensku málhljóðin? Best finnst honum að naga bein og þess vegna líta málhljóðin út eins og bein. En hann þarf aðstoð við að finna málbeinin á myndunum og æfa þau. Vilt þú hjálpa Lubba að finna málbein?
Meiri texti hér.
Vináttuverkefni Barnaheilla
Hér kemur texti
Gagnlegar upplýsingar
Leikskólinn er mikilvægur hluti af fyrstu árum barnsins og þar leggjum við áherslu á öryggi, vellíðan, leik og nám í góðu samstarfi við foreldra og forráðamenn.
Hér má finna gagnlegar upplýsingar sem gott er fyrir foreldra og fjölskyldur að vita um leikskólastarfið.
Aðlögun
Markmiðið er að barnið kynnist leikskóla og starfsfólki á rólegan og öruggan hátt með stuðningi foreldra sinna. Foreldri kynnist starfsfólkinu og öðrum foreldrum.
Aðlögunin byggir á fullri þátttöku foreldranna í starfi leikskólans þá daga sem hún á sér stað. Foreldri sinnir eigin barni, skiptir á því, gefur því að borða, leikur með því og er til staðar fyrir það.
Mikilvægt er að foreldri sé jákvætt og sátt með aðlögunina því það smitast yfir á barnið. Þátttökuaðlögun byggir á þeirri trú að öruggir foreldrar smiti eigin öryggiskennd yfir til barna sinna.
Íslensk veðrátta krefst þess að daglega séu meðferðis hlý föt til útiveru. Pollagalli er nauðsynlegur bæði á sumri og vetri. Aukaföt til skiptanna yst sem innst, einnig er gott að hafa með inniskó.
Í kassanum eiga að vera eftirfarandi aukaföt:
- 2 x nærbuxur 1x nærbolu 2 x sokkapör
- 1 x peysa 1x buxur 1x sokkabuxur/gammósíur
- 1 x bolur/stutt-/langerma 1 x vettlingapar
- 1 x lopasokka 1 x húfa
Hvert barn fær taupoka við byrjun vistunar og er hugsað að þeir pokar séu notaðir fyrir blaut og óhrein föt sem fara heim og ný til skiptanna koma í staðinn og sett í kassann aftur. Þau föt sem þið viljið að barnið sé í úti, hengið á snagann. Merkið öll föt - þau skila sér.
Snæfellsbær er ekki tryggður vegna lausafjármuna nemenda innan leikskólans. Ef gleraugu eða verðmætir munir skemmast er ekki hægt að fá það endurgreitt hjá tryggingafélagi bæjarins. Við viljum beina því til foreldra að fá sér sérstaklega gleraugnatryggingu vegna þessa og ekki leyfa nemendum að koma með verðmæt leikföng og fatnað í skólann
Hvíld hefst að loknum hádegismat.
Í Heilsustefnunni leggjum við mikla áherslu á þýðingu hvíldar þegar talað er um heilbrigðan lífsstíl því svefn er forsenda heilbrigðis á sama hátt og vatn, súrefni og næring.
En á yngri deildunum fara öll börnin í hvíldina, hvort sem þau sofa eða bara liggja og eiga rólega stund með kennurunum.
Rannsóknir sýna að um helmingur foreldra reyna að minnka eða hindra það að barnið sofni eftir hádegi eða vekja barnið í miðjum svefni því þeir óttast það að ef barnið sofi eftir hádegi þá eyðileggi það nætursvefninn. En hádegissvefninn er mjög mikilvægur til þess að barnið fái góðan nætursvefn. Fái barn ekki hádegissvefn verður það orðið mjög þreytt seinni hluta dags og aukning verður á stresshormóninu kortisol, sem undir eðlilegum kringustæðum minnkar á næturnar og eykst svo að morgni til. Þegar barnið verður of þreytt eykst stresshormónið sem þýðir það að barnið á erfiðara en annars með að sofna. Þegar barnið er orðið mjög þreytt veldur það stressi og stresshormónamagnið eykst fyrir svefninn sem þýðir að barnið á erfiðara með að sofna. Skoða þarf hversu margra klukkutíma svefn barnið er að fá í heild á sólarhring.
Góð þumalputtaregla til að meta hvort barn sé að fá nægan svefn er að kanna hversu auðvelt það á með að vakna.
Fólki hættir til að vanmeta svefnþörf barna og oft hafa börn þörf fyrir meiri svefn en þau fá. Hádegissvefn er náttúruleg þörf og hluti af heildarsvefnþörf barns á sólarhring. Meira að segja börn allt upp að 5 ára aldri geta haft þörf fyrir svefn eftir hádegi vegna uppsafnaðs langtíma skorts á svefni.
Að vekja barn í miðjum svefni má líkja við því að taka matardiskinn frá barni þegar barnið er búið að borða helminginn af matnum sínum. Þegar barnið er vakið eftir t.d. klukkustund þá er barnið í miðjum djúpsvefni og það hefur óæskileg áhrif á líðan barnsins í leik og starfi, það verður stressað, pirrað og órólegt sem hefur áhrif á samskipi þess við börn og fullorðna.
Hádegissvefn barna er líka oft kærkomin hvíld frá annríki, hávaða og stressi sérstaklega í leikskóla umhverfi.
Listi yfir svefnþörf barna eftir aldri:
- 12 mánaða börn 14-15 tímar
- 1-3 ára börn 12-14 tímar
- 3-6 ára börn 10-12 tímar
Hér kemur texti um foreldrasamstarf.
Foreldrafélag
Hér kemur texti um foreldrafélag.
Foreldraráð
Hér kemur texti um foreldraráð.
Gjaldskrá
Texti