Byggingarleyfi

Byggingarleyfi er veitt af Snæfellsbæ. Umsóknir berist í gegnum samræmt viðmót Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS).

Almenna reglan er að sækja þarf um byggingarleyfi fyrir nýjum mannvirkjum, viðbyggingum og breytingum sem geta haft áhrif á t.d. útlit, form, burðarkerfi, brunavarnir eða lagnakerfi. Einnig þarf leyfi til að rífa eða flytja mannvirki. Endanlegt mat á leyfisskyldu er hjá byggingarfulltrúa Snæfellsbæjar, enda getur skipulag og staðbundnar forsendur haft áhrif á kröfur og gögn. 

Nánari upplýsingar:

Getum við bætt efni þessarar síðu?