Menningarhús í Snæfellsbæ - stækkun bókasafns og tónlistarskóla

Snæfellsbær stefnir á að styðja auðugt menningarlíf í Snæfellsbæ með því að stækka bókasafn og tónlistarskóla með glæsilegri viðbyggingu sunnan og vestan við núverandi húsnæði að Hjarðartúni 6 í Ólafsvík.

Tillaga að hönnun gerir ráð fyrir að gengið verði inn í viðbyggingu frá Hjarðartúni. Þar tekur á móti fólki forrými sem nýtist sem þjónustuaðstaða og sýningarrými. Inn af forrými er gert ráð fyrir fjölnotasal sem myndi henta sérlega vel fyrir lifandi viðburði og tónlistarflutning. Gert er ráð fyrir að salur rúmi allt að 90 manns í sæti. Salurinn myndi njóta aukinn lofthæðar, aðstöðu fyrir flytjendur og hljóðfærageymslu. Hægt verði að ganga út á þaksvalir á viðbyggingu.

Framkvæmdin hefur í för með sér að nýting núverandi húsnæðis tekur á sig nýja mynd og fjölnota menningarhús þar sem skapast vettvangur til að hittast, verja tíma með vinum og fjölskyldu verður til í Snæfellsbæ. Bókasafn og tónlistarskóli verður þannig eflt sem samkomu- og þjónustustaður íbúa.

Grunnflatarmál viðbyggingar er um 200 fermetrar og gert er ráð fyrir að framkvæmdin muni kosti á bilinu 200 - 250 milljónir króna.

Meðfylgjandi er tillaga að hönnun og útfærslu.