Lífsgæðakjarni á lóð Átthagastofu - fleiri hjúkrunarrými og íbúðir fyrir 60+
Eins og íbúar Snæfellsbæjar hafa orðið varir við í vikunni, þá eru hafnar framkvæmdir við niðurrif á húsnæði Átthagastofunnar við Kirkjutún í Ólafsvík.
Þegar bæjarstjórn Snæfellsbæjar ákvað á sínum tíma að kaupa húsnæðið af þáverandi eigendum var það gert fyrst og fremst með það að markmiði að fjarlægja húsið, sem þá þegar var farið að þarfnast viðhalds, til að hafa möguleika á því að stækka Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar.
Undanfarin ár hefur orðið ljóst að húsið þarfnaðist verulegs viðhalds sem bæjarstjórn taldi ekki skynsamlegt að fara í, í ljósi þess að áformin voru enn að stækka Jaðar inn á lóð Átthagastofunnar.
Á íbúafundi síðastliðinn þriðjudag var lýst yfir þeim vilja Snæfellsbæjar að byggður yrði lífsgæðakjarni á lóðinni. Í fyrsta lagi yrði þrýst á ríkið um að farið verði í þá framkvæmd að stækka hjúkrunarheimilið inn á lóð Átthagastofunnar, enda er mikil þörf er á fleiri hjúkrunarrýmum á Jaðri, þó allir viti, að það getur tekið töluverðan tíma að fá í gegn framkvæmdir þegar um er að ræða samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélags. Hinn hluti lífgæðakjarnans yrðu sex íbúðir fyrir 60+ á lóðinni fyrir ofan Átthagastofuna.
Meðfylgjandi er teikning af hugsanlegum lífgæðakjarna.