Almyrkvi á sólu 12. ágúst - undirbúningur og viðbragð í Snæfellsbæ
Snæfellsbær hefur unnið umfangsmikla undirbúningsvinnu vegna almyrkvans sem verður sýnilegur hér á landi þann 12. ágúst 2026. Almyrkvi mun vara einna lengst af öllum stöðum í heiminum á landi hér í Snæfellsbæ og gert er ráð fyrir að fjöldi gesta leggi leið sína til Snæfellsbæjar til að fylgjast með þessum einstaka náttúruatburði.
Undirbúningsvinna Snæfellsbæjar hófst fyrir rúmum tveimur árum og fer fram í nánu samstarfi við Snæfellsjökulsþjóðgarð, önnur sveitarfélög, viðbragðsaðila og aðra hagaðila. Í allri undirbúningsvinnu leggur Snæfellsbær áherslu á öryggi og góða upplifun íbúa og gesta.
Segja má að undirbúningur Snæfellsbæjar hafi lengi verið tvíþættur þar sem sveitarfélagið hefur bæði unnið náið með skipuleggjendum hátíðarinnar Iceland Eclipse sem verður á Hellissandi og svo öðrum ferðaþjónustuaðilum og gestum sem ætla að dvelja í sveitarfélaginu og Snæfellsjökulsþjóðgarði þegar almyrkvinn stendur yfir.
Helsta áskorun í undirbúningsvinnu sveitarfélagsins, sem og annarra, er óvissa um fjölda gesta á hverjum einstökum stað. Reynsla frá öðrum stöðum í heiminum þar sem almyrkvi hefur verið sýnilegur hefur sýnt fram á að erfitt getur verið að spá fyrir um aðsókn þar sem margir óvissuþættir hafa áhrif á heildarfjölda gesta. Snæfellsbær hefur því teiknað upp mismunandi sviðsmyndir og þarf að búa svæðið undir mikinn fjölda gesta.
Ljóst er að atburður af þessari stærðargráðu getur haft áhrif á daglegt líf íbúa og ekki er hægt að gera ráð fyrir að allir verði ánægðir með þær ráðstafanir sem grípa þarf til. Biðlar Snæfellsbær því til íbúa um að sýna tillitssemi í þessu stóra verkefni sem fram undan er.
Sveitarfélagið mun upplýsa íbúa reglulega um framvindu mála og þær ráðstafanir sem gripið verður til eftir því sem nær dregur atburðinum. Hér að neðan má finna upplýsingar um ráðstafanir og stöðu mála þann 25. júní 2026.
- Hellissandur verður þungamiðja hátíðarinnar Iceland Eclipse sem stendur frá 11. - 15. ágúst. Gert er ráð fyrir að allt að 5000 gestir dvelji í viku á Hellissandi vegna hátíðarinnar.
- Hátíðarsvæði verður á Reynisvelli og gamla malarvellinum. Sjá mynd frá Iceland Eclipse.
- Uppsetning hátíðarsvæðis hefst 27. júlí og verður tekið niður 21. ágúst. Þegar mest lætur koma 300 manns að þessari vinnu.
- Félagsheimilið Röst verður ákveðin miðstöð fyrir hátíðina. Í skrifstofurými á efri hæð verður sett upp stjórn- og öryggismiðstöð fyrir hátíðina og á neðri hæð verður mötuneyti fyrir starfsfólk hátíðar.
- Snæfellsbær stækkar tjaldsvæði í Ólafsvík og á Hellissandi og bætir við rafmagnstenglum á báðum tjaldsvæðum til að mæta eftirspurn.
- Snæfellsbær vinnur að þróun, hönnun og uppsetningu á varanlegu minnismerki vegna almyrkva sem verður sett upp á Hellissandi.
- Geimferðamiðstöð Bandaríkjanna (NASA) verður í þjóðgarðsmiðstöð Snæfellsjökulsþjóðgarðs á Hellissandi með stóra sjónauka og beinar útsendingar á sínum miðlum.
- Slökkvilið Snæfellsbæjar verður með slökkvibíl og mannafla á Hellissandi.
- Lögreglan á Vesturlandi verður með aukið viðbragð og auka mannskap í sveitarfélaginu.
- Á túnum á Breiðinni hafa verið teiknuð upp bílastæði sem geta tekið á móti allt að 5000 einkabílum. Sjá staðsetningu á mynd.
- Á Háarifi verða rútubílastæði fyrir ferðaþjónustufyrirtæki. Nú þegar hafa ferðaþjónustufyrirtæki bókað stæði fyrir 22 rútur með allt að 1200 gesti. Gestum beint á söfnunarsvæði fyrir ofan Háarif. Sjá staðsetningu á mynd.
- Á Rifi verða tveir matvagnar og tímabundinni salernisaðstöðu komið fyrir.
- Á flugvellinum á Rifi, aflögðu flugbrautinni sem ekki lengur er í notkun, verða bílastæði fyrir allt að 900 bíla. Sjá staðsetningu á mynd.
- Á virku flugbrautina á flugvellinum má gera ráð fyrir þyrlum og einkaflugvélum auk þess sem fallhlífasamtök Íslands verða með stóran hóp fallhlífastökkvara á svæðinu.
- Í Ólafsvík eru bílastæði sem geta tekið á móti allt að 400 einkabílum. Sjá staðsetningu á mynd.
- Stór erlendur hópur verður í Félagsheimilinu Klifi þann 12. ágúst.
- Opnunartími sundlaugar, íþróttahúss og Lýsulauga verður lengdur frá 9. - 17. ágúst og tekið upp pöntunarkerfi til að anna álagi.
- Snæfellsbær hefur gefið öllum leik- og grunnskólabörnum í Snæfellsbæ sólmyrkvagleraugu. Félagar i félagi eldri borgara í Snæfellsbæ hafa einnig fengið gefins sólmyrkvagleraugu.
- Stefnt er að auknum vöktum á heilsugæslunni í Ólafvík og að fleiri sjúkrabílar verði til taks í sveitarfélaginu.
- Lögreglan og Vegagerðin hafa ákveðið að vera með umferðarstýringu þann 12. ágúst, frá Búðum að Öndverðarnesi. Markmið umferðarstýringar að tryggja greiða leið viðbragðsaðila ef neyðartilvik koma upp. Sjá umferðarstýringu á mynd.
- Snæfellsjökulsþjóðgarður hefur teiknað upp bílastæði og stýringar til að varna náttúru svæðisins og tryggja góða upplifun gesta. Starfsfólki þjóðgarðsins fjölgar verulega tímabundið en það verða 23 starfsmenn á vakt hjá þjóðgarðinum þann 12. ágúst og komið verður fyrir fjölmörgum tímabundum salernisaðstöðum við safnstaði innan þjóðgarðs.
- Rúmlega 40 skemmtiferðaskip ætla að raða sér upp á almyrkvaslóðinni með tugþúsundum farþega.
Athygli er vakin á að ofangreind upptalning er ekki tæmandi og verða upplýsingar uppfærðar eftir þörfum og þeim miðlað á síðum Snæfellsbæjar.