Tímabundin stæði fyrir matvagna í Snæfellsbæ 12. ágúst
Þann 12. ágúst verður almyrkvi sjáanlegur frá Íslandi og búist er við miklum fjölda gesta til Snæfellsbæjar.
Undirbúningur sveitarfélagsins vegna atburðarins snertir á mörgum þáttum eins og sjá má í þessari frétt frá 25. júní.
Í allri undirbúningsvinnu leggur Snæfellsbær áherslu á öryggi og góða upplifun íbúa jafnt sem gesta. Í ljósi þess hve mörgum gestum má búast við þann 12. ágúst hefur Snæfellsbær ákveðið að auglýsa tímabundin stæði fyrir matvagna á lóð Áttahagastofunnar í Ólafsvík, við höfnina á Rifi, við félagsheimilið Röst á Hellissandi og núverandi þjónustusvæði á Arnarstapa.
Nánar:
- Matvagnar skulu hafa öll tilskilin leyfi fyrir veitingasölu.
- Greiða þarf stöðuleyfisgjald fyrirfram til að staðfesta bókun.
- Stæðum verður úthlutað eftir dagsetningu umsókna og gildir meginreglan fyrstur kemur, fyrstur fær.
- Stæði eru opin þann 12. ágúst.
- Söluaðilar bera sjálfir ábyrgð á uppsetningu, öryggi og frágangi síns svæðis. Krafa gerð um að matvagnar bjóði upp á ruslatunnu fyrir viðskiptavini.
Athugið að takmarkað pláss er í boði og eru áhugasamir söluaðilar hvattir til að hafa samband sem fyrst til að tryggja stæði.
Nánari upplýsingar veitir Heimir Berg Vilhjálmsson, markaðs- og upplýsingafulltrúi, í netfanginu heimir@snb.is.
Fyrir almennar upplýsingar um almyrkvann bendum við á upplýsingasíðuna solmyrkvi2026.is.