Kort sem sýnir umfang undirbúnings vegna almyrkva í Snæfellsbæ
10.08.2026 |
Fréttir
Nú má sjá kort sem gefur skemmtilega innsýn í umfang þess undirbúnings sem unnið hefur verið að vegna almyrkva í Snæfellsbæ.
Kortið er ekki nákvæmniskort og er enn í vinnslu. Það er fyrst og fremst birt til gamans og til að gefa íbúum hugmynd um hversu umfangsmikið verkefnið er og hversu víða undirbúningur og skipulag vegna atburðarins nær.
Það má því líta á kortið sem smá sýnishorn af því mikla verkefni sem hefur verið í undirbúningi undanfarna mánuði.
Athugið að það þarf að þysja inn og út til að skoða kortið. Það opnast í 50 metra hæð og þarf því að byrja að þysja út.
Nánar: