Óleyfisframkvæmdir innan Snæfellsbæjar - allar byggingar eru leyfisskyldar

Að gefnu tilefni vill Snæfellsbær árétta að allar breytingar á byggingum og nýbyggingar í sveitarfélaginu eru leyfisskyldar, óháð stærð eða gerð.

Þetta á jafnt við um íbúðarhús, viðbyggingar, sólstofur, bílskúra, gestahús, kofa, skýli, geymslur og önnur mannvirki. Eins er nauðsynlegt að sækja um byggingarleyfi fyrir hvers konar breytingum á ytra byrði húss s.s. klæðningum, uppsetningu varmadæla og breytingum á gluggum.

Undanfarið hefur borið á óleyfisframkvæmdum innan sveitarfélagsins sem við koma breytingum á húsnæði og byggingu smáhýsa - sjá frétt um leiðbeiningar vegna smáhýsa frá 20. apríl sl. Mikilvægt er að sækja um leyfi fyrir slíkum framkvæmdum.

Við hvetjum alla lóðarhafa til að hafa samband við tæknideild Snæfellsbæjar og afla tilskilinna leyfa áður en framkvæmdir hefjast.

Á næstu dögum verður haft samband við lóðarhafa vegna óleyfisframkvæmda og framkvæmdir stöðvaðar í samræmi við 1. mgr. 2.9.1. gr. byggingarreglugerðar. Eigendum er hér með gefið færi á að sækja um framkvæmdir sem þegar eru hafnar og/eða er lokið.

Byggingarleyfisumsóknir berist í gegnum samræmt viðmót Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) og er byggingarleyfi veitt af Snæfellsbæ.

Nánari upplýsingar: