Leiðbeiningar fyrir smáhýsi innan lóða í Snæfellsbæ

Kæri íbúi Snæfellsbæjar, ertu að spá í setja niður smáhýsi á lóðinni þinni?

Ef svo er, þarf í öllum tilfellum að sækja um það til byggingarfulltrúa þar sem að ekki er gert ráð fyrir smáhýsum í þeim deiliskipulögum sem eru í gildi í sveitarfélaginu.

Þetta þýðir ekki að óleyfilegt sé að setja niður smáhýsi. Hægt er að sækja um leyfi en þá þarf að fylgja með umsókninni yfirlitsmynd sem sýnir staðsetningu smáhýsis á lóð. Í framhaldi verður umsóknin tekin til umfjöllunar hjá Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar. Fái erindið jákvæða afgreiðslu nefndarinnar fer málið í grenndarkynningu.

Hér að neðan er að finna grein 9.7.6 úr byggingarreglugerð sem fjallar um smáhýsi.

Ef eitthvað er óljóst varðandi þessi atriði bendum við á netfangið byggingarfulltrui@snb.is.

Byggingarreglugerð 9.7.6. Smáhýsi

Smáhýsi er skýli sem er almennt ætlað til geymslu garðáhalda og þess háttar og er ekki ætlað til íveru. Smáhýsi er ekki upphitað. Smáhýsi geta einnig verið garðhús eða notuð sem hjólageymslur. Smáhýsi er ekki byggingarleyfisskylt ef eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt, samanber 2.3.5. gr. byggingarreglugerðar, „enda sé slík bygging ekki óheimil samkvæmt gildandi deiliskipulagi:

  1. Flatarmál smáhýsis er að hámarki 15 m².
  2. Fjarlægð milli smáhýsa innbyrðis og frá glugga eða hurð húss, svo og frá útvegg timburhúss er að minnsta kosti 3,0 m.
  3. Veggur smáhýsis sem snýr að lóðarmörkum og er nær lóðarmörkum en 3,0 m er glugga- og hurðalaus.
  4. Mesta hæð útveggja eða þaks á smáhýsi er 2,5 m mælt frá yfirborði jarðvegs.
  5. Ef smáhýsi er nær lóðarmörkum en 3,0 m frá aðliggjandi lóð þarf samþykki eigenda aðliggjandi lóðar.

Eigandi sem ræðst í byggingu smáhýsis að fengnu leyfi/heimild ber ábyrgð á að ekki skapist hætta fyrir fólk og eignir vegna þess og að virt séu öll viðeigandi ákvæði byggingarreglugerðar. Hann skal einnig gæta þess að fyrirhugaðar framkvæmdir séu í samræmi við gildandi skipulagsáætlanir. Eigandi mannvirkis ber jafnframt ábyrgð á að ekki sé gengið á rétt nágranna og að virt séu ákvæði laga um fjöleignarhús, samanber 2.3.6. gr. byggingarreglugerðar.