Jólaandinn færist yfir Snæfellsbæ - fjölmargir viðburðir í vikunni

Í vikunni færist sannkallaður jólaandi yfir Snæfellsbæ þegar fjölbreyttir og skemmtilegir viðburðir verða á dagskrá. Það er nóg um að vera fyrir alla fjölskylduna og tilvalið að njóta samverunnar og koma sér í jólaskap.

Jólatré skreytt í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi
Dagana 25.–27. nóvember munu elstu börn leikskóla Snæfellsbæjar og nemendur á yngsta stigi grunnskóla Snæfellsbæjar skreyta jólatréð í Þjóðgarðsmiðstöðinni á skólatíma.

Aðventugleði í Snæfellsbæ
Fimmtudaginn 26. nóvember taka verslanir og þjónustuaðilar höndum saman og bjóða til árlegrar aðventugleði. Þá verður opið lengur, boðið upp á góð tilboð og ríkjandi notaleg jólastemning. Aðventugleðin hefur skapað sér fastan sess undanfarin ár og er orðin kærkomin hefð sem markar upphaf jólahátíðarinnar hjá mörgum. 

Jólatónleikar í Ólafsvíkurkirkju
Á fimmtudagskvöldið verða jólatónleikar þar sem Kirkjukór Ólafsvíkur kemur fram ásamt einsöngvurum og tónlistarfólki úr Snæfellsbæ. Á efnisskránni verða falleg jólalög úr ýmsum áttum sem koma okkur enn betur í jólaskap.

Hinn árlegi piparkökudagur
Á laugardaginn er komið að einum af ómissandi viðburðum aðventunnar, piparkökudegi foreldrafélags Grunnskóla Snæfellsbæjar. Þar gefst fjölskyldum tækifæri til að eiga notalega stund saman og njóta jólaundirbúningsins.

Jólatréð í Tröð lýst upp
Sunnudaginn 29. nóvember kl. 17:00 verða ljósin tendruð á jólatrénu í Tröð á Hellissandi í samstarfi við Skógræktar- og landverndarfélagið undir Jökli. Þar verður boðið upp á lifandi tónlist, dans í kringum jólatréð og heimsókn frá bræðrunum rauðklæddu. Nemendur í 10. bekk verða á staðnum með kakó.

Aðventukvöld Kvenfélags Ólafsvíkur
Kvenfélag Ólafsvíkur býður til síns árlega aðventukvölds í Ólafsvíkurkirkju sunnudaginn 29. nóvember.

Við hvetjum íbúa til að njóta samverunnar og eiga góðar stundir saman á aðventunni.