Jólaljós tendruð fyrsta sunnudag í aðventu, 29. nóvember
16.11.2026 |
Fréttir
Jólaljós verða tendruð við hátíðlega athöfn í Tröð á Hellissandi sunnudaginn 29. nóvember, fyrsta sunnudag í aðventu.
Þá gefst fjölskyldum í Snæfellsbæ tækifæri til að koma saman, njóta samverunnar og fagna upphafi aðventunnar í hlýlegri og hátíðlegri stemningu. Viðburðurinn er haldinn í samvinnu við Skógræktar- og landverndarfélagið undir Jökli.
Boðið verður upp á notalega dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Jólaljósin verða tendruð, lifandi tónlist mun hljóma og að sjálfsögðu verður dansað í kringum jólatréð. Hver veit nema jólasveinarnir komi til byggða og bregði á leik með yngri kynslóðinni.
Við hlökkum til að sjá sem flesta, unga sem aldna, eiga saman notalega stund í jólalandinu í Tröð fyrsta sunnudag í aðventu.