Heilsuvika Snæfellsbæjar 2026 í íþróttaviku Evrópu

Snæfellsbær gerir heilsu hátt undir höfði dagana 23. - 30. september og heldur heilsuviku Snæfellsbæjar í níunda skipti. Vikan er haldin á sama tíma og íþróttavika Evrópu.

Í heilsuvikunni er lögð áhersla á að kynna íþróttir, hreyfingu og heilsutengda viðburði sem eru nú þegar í boði í Snæfellsbæ og standa vonir til að allir geti fundið viðburð við hæfi eða sem vekur áhuga. Jafnframt verður frítt í sund alla vikuna og áhugaverðir fyrirlestrar og sérfræðingar á svæðinu.

Íbúar eru hvattir til að nýta vikuna og skella sér í sund, stunda útivist eða aðra hreyfingu og anda að sér fersku lofti í okkar fallega sveitarfélagi.

Nánar: