Vorhreinsun í Snæfellsbæ frá 1. - 18. maí 2026
Árleg vorhreinsun verður í Snæfellsbæ frá 1. til 18. maí 2026.
Eru íbúar hvattir til að taka höndum saman og fegra bæinn okkar. Flestum okkar líður betur í snyrtilegu umhverfi og nú er góður tími til að hreinsa nærumhverfið og eigin lóðir. Auglýst tímabil vorhreinsunar tekur mið af veðri og getur verið framlengt ef svo ber undir.
Gámar fyrir garðúrgang ásamt gámum með moltu verða settir upp á eftirtöldum stöðum:
Ólafsvík - á malarplani við Grundarbraut 40
Rifi - til móts við botnlanga að Háarifi 41-47
Hellissandi - við félagsheimilið Röst
Gámar eru eingöngu ætlaðir undir lífrænan garðúrgang. Öðrum úrgangi skal skilað á starfsstöð Kubbs í Ólafsvík sem er opin þriðjudaga og fimmtudaga milli 15:00 – 18:00 og laugardaga kl. 11:00 – 15:00. Garðaúrgangur sem losað er í gáma skal losa úr pokum eða öðru ólífrænum ílátum.
Rusl úr görðum og nærumhverfi sem sett hefur verið í ruslapoka við lóðarmörk verður ekki hirt af starfsmönnum áhaldahúss. Rusli sem er safnað við plokk úr görðum og opnum svæðum og er í glærum pokum verður hægt að skila á kostnað sveitarfélagsins alla opnunardaga móttökustöðvar undir Enni frá 30. apríl - 19. maí. Hægt er að nálgast glæra poka fyrir plokk í Sjoppunni Ólafsvík, Fönix á Rifi, Hraðbúðinni Hellissandi og Ráðhúsi Snæfellsbæjar.
Molta í stað moldar
Bent er sérstaklega á að í ár verður nýjung í þeirri mynd að boðið verður upp á moltu án endurgjalds í stað moldar á öllum stöðum. Þessi ákvörðun er tekin vegna þess að erfitt hefur verið að komast í góða og hreina gróðurmold.
Við notkun á moltu skal forðast að nota hana hreina ef verið er að útbúa ný beð. Hrein molta getur "brennt" rætur og best er að blanda hana 1/3 á móti mold eða öðrum jarðvegi, t.d. jarðveginum sem fyrir var í beðinu. Molta er mjög góð sem áburður/yfirlagsefni/jarðvegsbætir en þá er hún sett í þunnu lagi yfir núverandi beð eða blönduð saman við efsta lag jarðvegsins.
Nákvæm lýsing mun hanga á moltugámum ásamt leiðbeiningum um notkun. Öll lykt sem finnst þegar rótað er í moltugámunum mun ekki finnast þegar búið er að dreifa moltunni.
Auglýst tímabil vorhreinsunar tekur mið af veðri og getur verið framlengt ef svo ber undir.