Vorhreinsun í Snæfellsbæ 30. maí til 16. júní
Vorhreinsun verður í Snæfellsbæ frá 30. maí til 16. júní.
Gámar fyrir garðúrgang ásamt gámum með mold verða settir upp á eftirtöldum stöðum:
Ólafsvík
við Dalbraut, í dalnum á bak við JE Bílverk
Rifi
á túni við grenndarstöð nærri Háarifi 8
Hellissandi
við félagsheimilið Röst
Kraftmolta verður í boði í dalnum Ólafsvík. Úrgangi skal skilað á starfsstöð Kubbs sem er opin þriðjudaga og fimmtudaga milli 15:00 – 18:00 og laugardaga kl. 11:00 – 15:00.
Rusl úr görðum og nærumhverfi sem sett hefur verið í ruslapoka við lóðarmörk verður ekki hirt af starfsmönnum áhaldahúss. Garðaúrgangur sem losað er í gáma skal losa úr pokum eða öðru ólífrænum ílátum.
Tökum höndum saman og fegrum bæinn okkar. Flestum okkar líður betur í snyrtilegu umhverfi og nú er góður tími til að hreinsa nærumhverfið og eigin lóðir.