Vinna við endurskipulagningu muna á efstu hæð Pakkhússins
29.07.2026 |
Fréttir
Nú stendur yfir vinna við endurskipulagningu á munum sem geymdir eru í risinu í Pakkhúsinu í Ólafsvík.
Á meðan á þessari vinnu stendur er efsta hæðin í Pakkhúsinu lokuð almenningi. Húsið er opið að öðru leyti.
Hollvinasamtök Pakkhússins hafa fengið þau Guðlaugu Dröfn Gunnarsdóttur og Páll Ivan til að aðstoða sig í þessari vinnu, en margt er um merkilega hluti sem þarf að sýna virðingu og varðveita.
Rekstraraðilar Pakkhússins, Jane og Polina Korchiga, leiðbeina gestum varðandi þessa stöðu á meðan vinna stendur yfir.