Uppbyggingarsjóður Vesturlands er opinn fyrir umsóknir

Uppbyggingarsjóður Vesturlands er nú opinn fyrir umsóknir. Sjóðurinn styður fjölbreytt verkefni á sviði menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar auk þess að veita stofn- og rekstrarstyrki á sviði menningarmála á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands.
 
Umsóknarfrestur er til 21. október kl. 14:00 og er sótt um í gegnum umsóknargátt Rannís.
 
Umsækjendur eru hvattir til að leita aðstoðar hjá ráðgjöfum SSV sem eru boðnir og búnir að veita umsækjendum góð ráð við gerð umsókna.
 
Menningarverkefni (verkefnastyrkir og stofn- og rekstrarstyrkir)

Sigursteinn Sigurðsson í síma 433-2313 eða 698-8503
 
Atvinnuþróunar og nýsköpunarverkefni
 
Ólöf Guðmundsdóttir í síma 898-0247
Netfang: olof@ssv.is
 
Helga Guðjónsdóttir í síma 895-6707
Netfang: helga@ssv.is
 
Hrafnhildur Tryggvadóttir í síma 849-2718
Netfang: hrafnhildur@ssv.is
 
Nánari upplýsingar um Uppbyggingarsjóð Vesturlands er á finna á vef SSV.