Ungmenni fá sterkari rödd innan stjórnsýslu Snæfellsbæjar
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar samþykkti á fundi sínum þriðjudaginn 13. október síðastliðinn tilnefningar í ungmennaráð Snæfellsbæjar fyrir veturinn.
Jafnframt var samþykkt að gefa ungmennaráði aukin tækifæri til að koma sjónarmiðum ungs fólks á framfæri með því að skipa fulltrúa úr þeirra röðum í nokkrar af fastanefndum sveitarfélagsins.
Þátttaka ungs fólks í nefndarstarfi er mikilvægt skref í átt að auknu samráði og virkari þátttöku þeirra í samfélaginu. Með því að skapa ungmennum vettvang innan stjórnsýslunnar fá hugmyndir þeirra og sjónarmið meira vægi í umræðum og ákvarðanatöku. Framtíð samfélagsins snertir ungt fólk ekki síður en aðra íbúa og því er mikilvægt að rödd yngri íbúa heyrist þegar fjallað er um uppbyggingu, þjónustu og þróun Snæfellsbæjar. Með þátttöku í fastanefndum fá fulltrúar ungmennaráðs jafnframt betri innsýn í starfsemi sveitarfélagsins og tækifæri til að kynnast því hvernig ákvarðanir verða til.
Snæfellsbær vill með þessu leggja áherslu á mikilvægi þess að hlusta á ungt fólk og veita því raunveruleg tækifæri til þátttöku.
Ungmennaráð skipa eftirfarandi ungmenni: Alma Begic, Antoni Parol, Arnar Valur Matthíasson, Daði Þór Ægisson, Elísabeth Halldóra Roloff, Guðjón Kristinn Kristgeirsson, Hanna Líf Kristgeirsdóttir, Hrefna Jónsdóttir og Vigdís Júlía Bláfeld Viðarsdóttir.