Umsóknir um búsetu í þjónustukjarna í Ólafsvík
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir eftir umsóknum um búsetu í nýjum þjónustuíbúðakjarna fólks með fötlun að Ólafsbraut 62-64 í Ólafsvík.
Ein íbúð af þeim fimm sem staðsettar eru í íbúðakjarnanum er laus til úthlutunar. Íbúar þjónustukjarnans hljóta stuðningsþjónustu FSS, en stuðningsþjónusta felur í sér aðstoð og/eða leiðsögn til sjálfstæðrar búsetu í eigin íbúð.
Eldri áður innsendar umsóknir þarf að staðfesta með endurnýjuðu umsóknareyðublaði.
Umsækjendur uppfylli neðangreind skilyrði:
- Eigi lögheimili á Snæfellsnesi
- Eru eldri en 18 ára
- Hafi metna þjónustuþörf í 5. flokki SIS eða hærra
- Staðfest fötlunargreining frá Greiningar- og ráðgjafamiðstöð liggi fyrir
Umsókarfrestur er til 10. janúar 2026.
Umsóknir berist Sigurbjörgu Jóhannesdóttur, forstöðukonu þjónustuíbúðakjarna fyrir fólk með fötlun í Ólafsvík, í netfangið sigurbjorg@fssf.is eða með því að skila þeim á skrifstofu Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga við Klettsbúð 4 á Hellissandi.
Umsóknareyðublað má finna á vef Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga og hér að neðan.
Nánar: