Umgengni á leikskólalóðum ábótavant - tilkynning frá leikskóla

Umgengni á leikskólalóðum leikskóla Snæfellsbæjar í Ólafsvík og á Hellissandi hefur verið ábótavant á undanförnum vikum og farið versnandi. 

Leikskólalóðirnar eru opnar og öllum frjálst aðgengi að þeim eftir að dagvist á leikskóla lýkur. Á leikskólalóðunum er góð aðstaða fyrir fjölskyldur, börn og ungmenni til dægrastyttingar og samvistar. Við viljum að íbúar geti notað þessa flottu leiksvæði, en mikilvægt er að allir gangi vel um lóðirnar og skilji við lóðirnar líkt og þeir vilja koma að þeim.

Svo er ekki raunin í dag. Umgengni á lóðunum hefur hríðversnað á undanförnum vikum. Í dag er staðan sú að starfsfólk leikskóla neyðist til að fara út á hverjum morgni að hreinsa lóðirnar og gera þær öruggar börnum áður en þeim er hleypt í útiveru. Við starfsfólki blasir hvers kyns óþrifnaður, sér í lagi eru sígarettubstubbar og nikótínpúðar áberandi.

Við vonumst eftir því að umgengi um lóðirnar verði betri og er þess farið á leit við foreldra og forráðamenn að ræða við krakka og unglinga og brýna þeim fyrir að skilja ekki eftir rusl á lóðinni.

Hjálpumst að við að halda lóðunum hreinum, fínum og öruggum fyrir leikskólabörnin okkar.