Tjaldsvæði Snæfellsbæjar opna fyrir sumarið

Tjaldsvæðið á Hellissandi opnaði í gær, 15. apríl, fyrir sumarið. Tjaldsvæðið í Ólafsvík opnar á næstu dögum.

Tjaldsvæðin hafa notið mikilla vinsælda síðustu ár og hefur Snæfellsbær leitast eftir því að bæta sífellt þá aðstöðu og þjónustu sem finna má á tjaldsvæðunum. Gestir á liðnu ári voru tæplega 27.000 og fer vaxandi með hverju ári.

Á tjaldsvæðunum má finna eftirfarandi þjónustur:
 
  • Glæsileg þjónustuhús
  • Klósett (aðgengi fyrir fatlaða)
  • Sturta (aðgengi fyrir fatlaða í Ólafsvík)
  • Heitt og kalt vatn
  • Eldunaraðstaða
  • Vaskarými
  • Úrgangslosun
  • Rafmagn/rafmagnstenglar
  • Internet
  • Frisbígolfvöll
  • Leikvellir fyrir börn
  • Þjóðgarðsmiðstöð með aðgengi að klósettum allan sólarhringinn og upplýsingagjöf og þjónustu á opnunartíma (á Hellissandi)

Umsjón með tjaldsvæðum hefur Patrick Roloff. Hægt er að hafa samband við hann í síma 844–6929.

Gjaldskrá: