Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Amtmannshúsið á Arnarstapa
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkti á fundi sínum þann 19. júní 2025 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Amtmannshúsið á Arnarstapa í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Með nýju deiliskipulagi er skilgreindur byggingarreitur undir vellíðunarhús sem mun hýsa slökunarrými, þurrgufu, heitan pott og verandir. Vellíðunarhúsið skal ríma við útlit núverandi húsa á lóðinni, klætt dökkri viðarklæðningu, með mænisþaki sem stallast niður með landslaginu. Útveggir skulu klæddir að hluta til með hlöðnu grjóti líkt og núverandi veggir á lóðinni. Breytingar innan lóðar taka eingöngu til uppbyggingu vellíðunarhúss og svæðis í kringum það. Leyfilegt er að byggja alls 130 fm A+B rými. A rými má þó ekki vera stærra en 80 fm.
Gögn eru frá KRADS: Uppdráttur og greinargerð ásamt skýringaruppdrætti
Hægt er að skoða tillöguna frá 25. júní - 6. ágúst 2025 á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar undir málsnúmeri 851/2025.
Umsagnaraðilum og þeim sem eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna í síðasta lagi 6. ágúst 2025. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast inn á skipulagsgatt.is vegna máls nr. 851/2025.
Skipulagsfulltrúi Snæfellsbæjar