Tillaga að breyttu deiliskipulagi á Arnarstapa, Snæfellsbæ

Bæjarstjórn Snæfellsbæjar samþykkti á fundi sínum þann 8. janúar 2026 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi á Arnarstapa í samræmi við 1. mgr. 43. gr skipulagslaga.

Deiliskipulagstillagan nær til Hótel Arnarstapa við Bárðarslóð 1 sem er innan VÞ-1 á Arnarstapa, Snæfellsbæ. Gert var ráð fyrir í deiliskipulagi frá 2015 að leyfilegt byggingarmagn fyrir þjónusthús væri 290 fm. Í breytingartillögu er gert ráð fyrir stækkun á byggingarreit til suðurs og aukningu á heimiliðu byggingarmagni þjónustuhúss um 160 fermetra eða þannig að leyfilegt byggingarmagn þjónustuhúss verði í heildina allt að 450 fermetrar.

Gögn eru frá Pro-Ark Teiknistofu: Greinargerð, deiliskipulag fyrir breytingu í mælikvarða 1:1.000 og tillaga að breyttu deiliskipulagi í mælikvarða 1:1.000.

Hægt er að skoða tillöguna frá 22. janúar – 5. mars 2026 á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, skipulagsgatt.is, undir málsnúmeri 71/2026.

Umsagnaraðilum og þeim sem eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna í síðasta lagi 5. mars 2026. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast inn á skipulagsgatt.is vegna máls númer 71/2026.

Skipulagsfulltrúi Snæfellsbæjar