Tillaga að breyttu deiliskipulagi við Fellaslóð 3 á Arnarstapa, Snæfellsbæ
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar samþykkti á fundi sínum þann 4. júní 2025 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi á Arnarstapa í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Deiliskipulagstillagan nær til Fellaslóðar 3, Arnarstapa sem er innan VÞ-1 á Arnarstapa, Snæfellsbæ. Í breytingartillögu er gert ráð fyrir stækkun á byggingarreit um 3 metra til suður þannig að byggingarreiturinn verði alls 11 metrar á lengd. Breidd helst óbreytt. Heildar byggingarmagn fari ekki yfir 135 fm. Nýbygging skal vera í svipuðu útliti og núverandi hús með mænishæð allt að 3,5 metrum.
Gögn eru frá Arkotek arkitektar: Greinargerð, deiliskipulag fyrir breytingu í mælikvarða 1:1000 og tillaga að breyttu deiliskipulagi í mælikvarða 1:1000.
Hægt er að skoða tillöguna frá 17. September – 29. október 2026 á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, skipulagsgatt.is, undir málsnúmerinu 1061/2026.
Umsagnaraðilum og þeim sem eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna í síðasta lagi 29. október 2026. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast inn á skipulagsgatt.is vegna máls númer 1061/2026.
Skipulagsfulltrúi Snæfellsbæjar