Tilkynning frá Yfirkjörstjórn Snæfellsbæjar

Yfirkjörstjórn Snæfellsbæjar tilkynnir hér með að einungis einn framboðslisti hefur borist til sveitarstjórnarkosninga í Snæfellsbæ þann 16. maí 2026, og er það framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Snæfellsbæ.

Með vísan til 3. mgr. 46. gr. laga nr. 115/2021 telst framkominn framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Snæfellsbæ því sjálfkjörinn.

Þar af leiðandi verða engar kosningar til sveitarstjórnar í Snæfellsbæ þann 16. maí 2026.

Snæfellsbær, 13. apríl 2026

Yfirkjörstjórn Snæfellsbæjar