Sumarafleysingar á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Jaðri

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar auglýsir eftir fólki í sumarafleysingar í eftirfarandi störf:

  • Sjúkraliða og ófaglært fólk í vaktavinnu við almenna aðhlynningu
  • Ræstingar og þvottahús
  • Matráð og aðstoð í eldhúsi
  • Hjúkrunarfræðing og sjúkraliða með umsjón með hjúkrun- og lyfjamál

Á Jaðri eru samtals 19 hjúkrunar- og dvalarrými. Heimilið var stækkað árið 2011 og er aðstaða íbúa og starfsmanna mjög góð.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sveigjanleiki, áreiðanleiki og stundvísi
  • Frumkvæði í starfi og sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Hreint sakavottorð

Umsóknarfrestur til 28. febrúar 2026.

Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Frekari upplýsingar um störfin veitir Sigrún Erla Sveinsdóttir, forstöðumaður í s. 433-6933 og á sigrunerla@snb.is.

Umsóknir berist í gegnum ráðningarvef Snæfellsbæjar.