Samgöngustofa auglýsir styrki til hugvitsmanna 2025
08.05.2025 |
Fréttir
Ár hvert veitir Samgöngustofa styrk/styrki til ýmissa rannsóknarverkefna sem tengjast öryggi skipa, atvinnusjómanna, farþega og búnaðar um borð í skipum sem og verkefna sem snúa að heilsusamlegu umhverfi sjófarenda.
Gert er ráð fyrir að veita styrki til einstaklinga og/eða félaga sem koma með tillögur að lausnum í þessa átt. Heildarstyrkupphæðin hljóðar upp á 2.500.000 krónur að hámarki hvert ár og er öllum frjálst að sækja um.
Umsókn skal senda á netfangið styrkur@samgongustofa.is. Umsóknareyðublað, upplýsingar um fylgigögn, reglur og markmið má finna á vef Samgöngustofu.