Stóri plokkdagurinn í Snæfellsbæ 26. apríl

Stóri plokkdagurinn verður haldinn um land allt sunnudaginn 26. apríl og eru íbúar hvattir til að plokka og fegra nærumhverfi sitt í tilefni dagsins.

Snæfellsbær tekur Stóra plokkdeginum að vanda fagnandi og útvegar plokkurum poka sem hægt verður að nálgast í Ráðhúsi Snæfellsbæjar, Sjoppunni Ólafsvík, Smiðjunni Fönix á Rifi og Hraðbúðinni á Hellissandi.

Starfsmenn Áhaldahúss munu síðan sækja afrakstur plokksins mánudaginn 27. apríl á þrjá staði í þéttbýli Snæfellsbæjar, við gömlu slökkvistöðina að Naustabúð 7 á Hellissandi, aftan við grenndarskýlin við spennistöðina við Hárif og við Áhaldahús Snæfellsbæjar að Norðurtanga 7 í Ólafsvík. Lítil skilti munu merkja staðina. Plokkarar eru beðnir að loka pokunum vel svo þeir opnast ekki.

Snæfellsjökulsþjóðgarður blæs einnig til plokkviðburðar sunnudaginn 26. apríl og ætlar að hreinsa friðlandið fallega á Arnarstapa.

Nú er rétti tíminn til að plokka þar sem rusl er víða áberandi og gróðurinn að taka við sér eftir veturinn. Stóri plokkdagurinn veitir því kjörið tækifæri til að hreyfa sig og fegra umhverfið í leiðinni.

Sýnum umhverfinu og samfélaginu kærleik og plokkum eins og vindurinn.

 Ljósmynd: Snæfellsjökulsþjóðgarður.