Snjómokstur í þvergötum í Ólafsvík 11. mars 2026

Tilkynning til íbúa í Ólafsvík vegna snjómoksturs.
 
Í fyrramálið, 11. mars, verður hafist handa við að moka snjó af þvergötum í Ólafsvík. Byrjað verður kl. 8:00 í fyrramálið og unnið fram eftir degi.
 
Íbúar eru vinsamlegast beðnir að huga vel að lagningu ökutækja og færa bíla af götum fyrir þann tíma svo snjómokstur gangi sem greiðast fyrir sig.