Snæfellsbær tekur upp nýtt viðmót fyrir umsóknir um byggingarleyfi

Snæfellsbær hefur nú innleitt nýtt og notendavænt umsóknarviðmót fyrir byggingarleyfi, þróað af Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS).

Með innleiðingunni bætist sveitarfélagið í hóp þeirra sveitarfélaga á landinu sem þegar hafa tengst kerfinu, en stefnt er að því að öll sveitarfélög á landinu verði komin inn í kerfið árið 2027.

Nýja viðmótinu er ætlað að einfalda og samræma umsóknarferli og útgáfu byggingarleyfa. Markmiðið er meðal annars að bæta yfirsýn yfir stöðu uppbyggingar á Íslandi og stuðla að faglegri og betri mannvirkjagerð í framtíðinni.

Innleiðingin er jafnframt liður í áframhaldandi stafrænni þróun hjá Snæfellsbæ. Kerfið leiðbeinir umsækjendum í gegnum ferlið og stuðlar að því að gögn berist samræmd og í betri gæðum. Það einfaldar vinnslu mála hjá byggingarfulltrúa og öðrum fagaðilum sem koma að afgreiðslu byggingarmála.

Gagnlegar upplýsingar og leiðbeiningar má sjá með því að smella á hnappinn fyrir neðan.

Nánari upplýsingar: