Snæfellsbær óskar eftir áhugasömum einstaklingum í ungmennráð Snæfellsbæjar

Snæfellsbær auglýsir eftir áhugasömum einstaklingum í ungmennaráð Snæfellsbæjar.

Hlutverk ungmennaráðs er m.a. að vera bæjarstjórn Snæfellsbæjar til ráðgjafar um málefni ungs fólks í sveitarfélaginu, að vera vettvangur þar sem ungmenni geta haft áhrif á þau málefni sem þau telja mikilvæg og skipulagninu á viðburðum.

Fulltrúar í ungmennaráði fá greitt fyrir fundarsetu með sama hætti og fulltrúar í öðrum nefndum. Viðkomandi þarf að vera á aldrinum 13 - 25 ára.

Nánari upplýsingar má sjá á meðfylgjandi auglýsingu.

Áhugasamir hafi samband við Halldóru Kristínu Unnarsdóttur í netfangið dora@gsnb.is.