Snæfellsbær léttir undir með barnafjölskyldum - dvalargjald í leikskóla lækkar um helming

Bæjarstjórn Snæfellsbæjar samþykkti á fundi sínum þann 13. október að lækka dvalargjald í leikskóla um 50% frá og með áramótum.

Tillagan kom frá forseta bæjarstjórnar og rímar vel við þær áherslur sem D-listinn kynnti á opnum íbúafundi í Félagsheimilinu Klifi þann 5. maí síðastliðinn og miða að fjölskylduvænu samfélagi.

Með lækkun dvalargjalda vill Snæfellsbær leggja sitt af mörkum til að styðja við fjölskyldur í sveitarfélaginu, stuðla að samfélagi þar sem gott er að ala upp börn og skapa fjölskyldum meira fjárhagslegt svigrúm í daglegu lífi. Með lækkun dvalargjalda er Snæfellsbær jafnframt að leggja sitt af mörkum til að halda aftur af verðbólgu og sýna í verki að það sé vilji til að styðja íbúa með raunhæfum aðgerðum.

Ný gjaldskrá tekur gildi 1. janúar 2027 og nær yfir dvalargjöld í leikskóla Snæfellsbæjar og við Lýsukot í Lýsuhólsskóla.