Snæfellsbær hlýtur viðurkenningu jafnvægisvogarinnar 2026
15.10.2026 |
Fréttir
Snæfellsbær hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem sveitarfélagið hefur verið á sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Fjölbreytt stjórnendateymi taka betri ákvarðanir, stuðla að sterkari menningu og betri árangri fyrir sveitarfélagið og samfélagið allt.
Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) og hefur frá árinu 2019 hvatt fyrirtæki, opinbera aðila og sveitarfélög til að stuðla að fjölbreyttari og jafnari stjórnun.
Viðurkenningin var afhent á árlegri hátíð Jafnvægisvogarinnar þann 14. október, þar sem jafnframt var fjallað um mikilvægi fjölbreytni og jafnréttis í íslensku atvinnulífi.
Auður Kjartansdóttir og Júníana Björg Óttarsdóttir tóku við viðurkenningunni fyrir hönd Snæfellsbæjar.
Snæfellsbær þakkar Jafnvægisvoginni fyrir viðurkenninguna og ekki síst frábæru starfsfólki sveitarfélagsins, sem hefur lagt sitt að mörkum til að gera þetta að veruleika.