Snæfellsbær gefur starfsfólki gjafabréf í jólagjöf - vill þitt fyrirtæki taka þátt?

Eftir frábærar undirtektir starfsfólks og þjónustuaðila í sveitarfélaginu hefur Snæfellsbær ákveðið að endurtaka leikinn frá síðasta ári og gefa starfsfólki gjafabréf í jólagjöf.

Snæfellsbær auglýsir því eftir verslunar- og þjónustuaðilum í Snæfellsbæ sem hafa áhuga á að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsfólks sveitarfélagsins.

Fyrirkomulagið er með þeim hætti að starfsfólk fær gjafabréf í jólagjöf sem hægt er að nýta hjá þeim fyrirtækjum í sveitarfélaginu sem vilja taka á móti gjafabréfinu. Með þessu móti veitir Snæfellsbær starfsfólki val um nýtingu og styrkir um leið starfandi fyrirtæki og þjónustuaðila í sveitarfélaginu.

Gjafabréfin virka sem greiðsla upp í kaup á vöru og þjónustu í Snæfellsbæ. Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæð innleystra gjafabréfa greidda hjá Snæfellsbæ gegn framvísun gjafabréfa.

Gert er ráð fyrir að hægt verði að nota gjafabréfin frá 15. desember 2026 til og með 30. júní 2027 og er starfsfólk hvatt til að nýta gjafabréfin á þeim tíma.

Skilyrði fyrir þátttöku verslunar- og þjónustuaðila er að fyrirtækið sé með starfsemi í Snæfellsbæ.

Skráningarfrestur fyrirtækja og þjónustuaðila er til 26. nóvember 2026.

Skráning fer fram á netfanginu heimir@snb.is og nánari upplýsingar gefur Heimir Berg Vilhjálmsson, markaðs- og upplýsingafulltrúi Snæfellsbæjar.