Snæfellsbær auglýsir stöðu hafnarstjóra lausa til umsóknar

Laus er til umsóknar staða hafnarstjóra í Snæfellsbæ.

Sjávarútvegurinn er ein af mikilvægustu atvinnugreinum í Snæfellsbæ og eru reknar þrjár hafnir í bæjarfélaginu; í Ólafsvík, Rifi og á Arnarstapa. Auk þess á Hafnarsjóður Snæfellsbæjar hafnarmannvirki á Búðum og Hellnum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Daglegur rekstur og stjórnun hafnanna
  • Undirbúningur og gerð fjárhagsáætlana, ásamt eftirfylgni
  • Umsjón með viðhaldi mannvirkja, fasteigna og tækja í eigu hafnarsjóðs
  • Umsjón og eftirlit með hafnarþjónustu
  • Upplýsingagjöf og eftirfylgni ákvarðana hafnarstjórnar
  • Samskipti við opinbera aðila og atvinnulífið
  • Umsjón og ábyrgð á starfsmannamálum hafnanna
  • Umsjón og eftirlit með öllum framkvæmdum hafnanna

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi, s.s. viðskiptafræði
  • Reynsla og þekking á stjórnun og rekstri
  • Reynsla af störfum tengdum sjávarútvegi er kostur
  • Þekking á hafnarmálum og atvinnulífi í Snæfellsbæ er kostur
  • Samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Leiðtogahæfni, frumkvæði og metnaður í starfi
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

Starfshlutfall er 100% og eru laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Næsti yfirmaður hafnarstjóra er bæjarstjóri.

Sótt er um starfið á vefsíðu Hagvangs. Umsóknarfrestur er til 10. október 2025. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf.

Upplýsingar um starfið veita Geirlaug Jóhannesdóttir hjá Hagvangi (geirlaug@hagvangur.is) og Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar.

Nánar: