Snæfellsbær auglýsir laust raðhús fyrir íbúa eldri en 60 ára

Snæfellsbær auglýsir lausa til umsóknar íbúð í raðhúsum við Helluhól 14 á Hellissandi.  Um er að ræða Helluhól 14c.

Húsið er um 122 fermetrar að meðtöldum innbyggðum bílskúr. Skipulag er opið og gott, íbúðarrými er samtals um 91 fermetrar og bílskúr um 31 fermetrar.

Húsið er fullbúið með flísalögðu baðherbergi ásamt flísum á þvottahúsi og bílskúr. Önnur gólf eru parketlögð.

Húsið stendur til boða sem leiguíbúð fyrir 60 ára og eldri.

Nánari upplýsingar fást hjá Kristni Jónassyni, bæjarstjóra, í netfanginu kristinn@snb.is og Lilju Ólafardóttur, bæjarritara, í netfanginu lilja@snb.is. Einnig hægt að nálgast þau í síma 433 6900 á opnunartíma Ráðhúss Snæfellsbæjar.

Lýsing:

  • 3 svefnherbergi
  • Gólfhiti
  • Upptekin loft
  • Steypt bílaplan
  • Sólpallur
  • Parket og flísar á gólfum
  • Innbyggð raftæki í eldhúsinnréttingu

Ljósmyndir: