Skotthúfan 2025 verður haldin 28. júní í Stykkishólmi

Skotthúfan 2025 verður haldin í Stykkishólmi 28. júní. Í ár fögnum við því að þjóðbúningadagur hefur verið haldinn í Stykkishólmi í 20 ár!

Dagskráin verður sem hér segir:

11 - 17 Norska húsið: Komið og rifjið upp Þjóðbúningadag Byggðasafnsins í 20 ár.
Ljósmyndasýning í tilefni af þjóðbúningadegi safnsins sem haldinn hefur verið í 20 ár. Svipmyndir frá liðnum árum. Skotthúfa Auðar Laxness verður kynnt í safnbúðinni.
 
Æðarsetur Íslands & Sjávarborg Café: Komdu og fáðu þér kaffi
Æðarsetur Íslands (Opið 13-17) og Sjávarborg Café (Opið 12-17) bjóða búningaklæddum gestum upp á kaffi og þjóðlegar veitingar í tilefni dagsins. Öll velkomin.
 
12 - 16 Tang & Riis: Komið og kaupið!
Farandverslun Heimilisiðnaðarfélags Íslands
 
12 - 16 Tang & Riis: Komið og kniplið!
Komið og kniplið, kynnist skemmtilegri handverksaðferð hjá Heimilisiðnaðarfélaginu. Gestir geta fengið að prófa.
 
12 - 16 Vinnustofan Tang & Riis: Komið og skoðið freyjur og fugla
Sýning Ingibjargar H. Ágústsdóttur mæðgur opin í vinnustofu í kjallara.
 
12 - 14 Gamla frystihúsið, Aðalgata 1: Komið og lærið að kveða
Atli Freyr kennir kveðskaparlist, hefur þú prófað að kveðast á?
 
14 - 16 Gamla frystihúsið, Aðalgata 1: Komið og lærið að dansa
Félagar úr Þjóðdansafélagi Reykjavíkur kenna áhugasömum íslenska þjóðdansa.
 
16:00 Myndataka við Norska húsið
Þjóðbúningaklæddir gestir sitja fyrir á árvissri mynd hátíðarinnar.
 
16:15 Þjóðdansar á Plássinu: Komdu og stígðu dans
Félagar úr Þjóðdansafélagi Reykjavíkur taka sporið fyrir utan Norska húsið. Dansaðir verða íslenskir þjóðdansar og gestum gefst tækifæri að taka þátt í dansinum.
 
18 - 22 Hótel Fransiskus: Komdu á kvöldvöku

Opið hús frá kl. 18 - 22 í morgunverðarsal Fransiskus gengið inn frá bílastæði sunnan megin.
Súpa borin fram frá kl. 19 á meðan birgðir endast. Verð fyrir súpu kr. 2.000 Skráning nauðsynleg - https://forms.gle/xGPyAfsuNJapzm5f8
Kvöldvaka hefst kl. 20 Kvöldvökustjóri: Eydís Gauja.
Þjóðbúningaspurningakeppni, kveðskapur, Eyjólfur Eyjólfsson verður með langspilskynningu og tónlistarflutning með hjálp gesta, samsöngur og fleira.