Sjúkraliði óskast á Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar óskar eftir að ráða sjúkraliða í vaktavinnu. Um er að ræða 90% stöðu frá og með 1. september nk.

Ef ekki næst að ráða sjúkraliða í starfið er óskað eftir að ráða ófaglært starfsfólk.

Á Jaðri eru samtals 19 hjúkrunar- og dvalarrými. Heimilið var stækkað árið 2011 og er aðstaða íbúa og starfsmanna mjög góð.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sveigjanleiki, áreiðanleiki og stundvísi
  • Frumkvæði í starfi og sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta

Umsóknarfrestur til 7. júlí 2025. Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Erla Sveinsdóttir, forstöðumaður Jaðars, í netfanginu sigrunerla@snb.is.

Sótt er um starfið á ráðningarvef Snæfellsbæjar.