Sandara- og Rifsaragleði er haldin 9. - 11. júlí 2026
07.07.2026 |
Fréttir
Fjölskylduhátíðin Sandara- og Rifsaragleði er handan við hornið.
Mikið er lagt upp úr vandaðri dagskrá fyrir alla fjölskylduna, hverfum er skipt upp eftir litum og keppt í hinum ýmsu greinum áður en íbúar sameinast í götugrill, brekkusöng og almenna gleði.
Hátíðin kallar brottflutta vestur og eru allir velkomnir á Hellissand og Rif enda dagskrá fjölbreytt og fjölmargt í boði fyrir alla aldurshópa eins og sjá má á meðfylgjandi dagskrá.
