Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hljóta styrk fyrir verkefni í sunnanverðum Snæfellsbæ
18.02.2026 |
Fréttir
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hlutu á dögunum styrk úr Byggðaáætlun Innviðaráðuneytisins fyrir verkefnið Búseta og samfélag í dreifbýli í sunnanverðum Snæfellsbæ. Er styrkveitingin hluti af átaki innviðaráðuneytisins til að efla viðkvæmar byggðir landsins.
Verkefnið felst í heildstæðri greiningu á forsendum búsetu og byggðafestu í dreifbýli í sunnanverðum Snæfellsbæ, skólahverfi Lýsuskóla. Unnin verður greining, sviðsmyndavinna og raunhæfar tillögur að leiðum til að efla íbúabyggð, fjölskyldubúsetu og samfélagsinnviði.
Styrkurinn nemur 11,5 milljónum króna.
Nánar um styrkveitinguna og aðra styrkhafa má finna á vefsíðu Stjórnarráðsins.