Rarik auglýsir rafmagnsleysi aðfaranótt föstudagsins 29. maí

Meðfylgjandi er tilkynning frá Rarik varðandi rafmagnsleysi aðfaranótt föstudagsins 29. maí 2026

Aðfaranótt föstudagsins 29. maí n.k. hyggst Landsnet fara í nauðsynlegar viðhaldsaðgerðir í tengivirki við sameiginlega aðveitustöð Landsnets og Rarik í Vatnshömrum. Af þessum sökum mun verða rafmagnslaust á stóru svæði í u.þ.b. 2 klst., eða frá kl. 00:10-02:10 þessa nótt. Svæðið sem um ræðir er allt Snæfellsnes og Borgarfjörður, þ.m.t. Stykkishólmur, Grundarfjörður, Ólafsvík, Hellissandur, Vegamót og Borgarnes. Rarik hvetur viðskiptavini sína á svæðinu til að gera viðeigandi ráðstafanir sé þess þörf.

Meðfylgjandi er kort af því svæði sem um ræðir og verður rafmagnslaust í u.þ.b. 2 klst.

Stjórnstöð okkar ætti nú þegar að hafa sent frá sér skilaboð til ykkar sem og íbúa í sveitarfélaginu en við viljum tryggja að sem flestir fái upplýsingar um fyrirhugað rafmagnsleysi og sendum því sérstakan póst út á skrifstofur þeirra sveitarfélaga sem við á. Ef þið gætuð aðstoðað okkur við að koma þessum skilaboðum áfram til ykkar íbúa yrðum við mjög þakklát fyrir það. Einnig væri gott að láta forsvarsmenn heilbrigðisstofnana vita sérstaklega af þessu þar sem slíkt virðist því miður oft gleymast.

Á eftirfarandi hlekk er að finna góð ráð, m.a. varðandi það hvernig draga má úr líkum á tjóni vegna rafmagnsleysis.