Óskað eftir starfsmanni í sumarafleysingar við félagslega heimaþjónustu í Snæfellsbæ

Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir eftir starfsmanni í sumarafleysingar við félagslega heimaþjónustu (þrif, innlit og leiðsögn).

Um er að ræða 50% starf við heimili í Snæfellsbæ. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

  • Starfið fer alla jafna fram á dagvinnutíma, en möguleiki er á sveigjanleika.
  • Einnig er hægt að taka að sér 25% starf.

Laun eru skv. kjarasamningi sveitarfélaganna og Kjalar.

Nánari upplýsingar veita Brynja Mjöll og Ragnheiður Dröfn í síma 430 7800 eða á netföngunum brynja@fssf.is og ragnheidur@fssf.is.