Örstyrkir til menningarverkefna í Snæfellsbæ í vetur

Menningarnefnd Snæfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum um örstyrki til menningarverkefna í Snæfellsbæ.

Veittir verða styrkir til tónleikahalds, listasýninga, útgáfu eða annarra verkefna sem styðja við lista- og menningarlíf í Snæfellsbæ, íbúum til heilla. Skilyrði að styrkhæf verkefni komi til framkvæmda veturinn 2026/2027.

Umsóknir sendist á netfangið menningarnefnd@snb.is.

Umsóknarfrestur er til 12. nóvember 2026.

Íbúar á öllum aldri eru hvattir til að sækja um styrk til að gera eitthvað spennandi og skemmtilegt í vetur.