Opnunarhátíð Barnamenningarhátíðar Vesturlands í Klifi 1. október
29.09.2026 |
Fréttir
Barnó, barnamenningarhátíð Vesturlands, verður haldin í október. Opnunarhátíð verður haldin í Félagsheimilinu Klifi 1. október kl. 18:00.
Dagskrá Barnó er fjölbreytt og miðast við að börn á öllum aldri finni eitthvað við sitt hæfi. Mikið verður um dýrðir og viðburði á öllu Vesturlandi.
Barnó hefst formlega með opnunarhátíðinni í Klifi þar sem hulunni verður svipt af dagskránni og hressir krakkar geta lyft sér upp.
Öll börn á öllum aldri eru hjartanlega velkomin á opnunarhátíðina.
Við hvetjum íbúa til fylgja Barnó á Facebook.