Opnun ljósmyndasýningarinnar The Glacier Project í þjóðgarðsmiðstöðinni
09.03.2026 |
Fréttir
Í tilefni af alþjóðlegum degi jökla, sem er þann 21. mars ár hvert, opnar ljósmyndasýningin The Glacier Project þann 13. mars í þjóðgarðsmiðstöð Snæfellsjökulsþjóðgarðs.
Dagurinn er tileinkaður vitundarvakningu um mikilvægi jökla fyrir umhverfið, ferskvatnsbirgðir jarðar og áhrif loftslagsbreytinga á þá. Markmiðið með deginum er að hvetja einstaklinga, stjórnvöld og vísindasamfélagið til að grípa til aðgerða til að vernda þessa viðkvæmu náttúruauðlind.
Að sýningunni standa hollensku listamennirnir Merel Klomp og Elmar Janse með stofnendur listastúdíósins Encritre í Rotterdam. Þau munu sýna verk sín á meðan á listamannadvöl þeirra stendur hjá Arctic Canvas á Hellnum.
Flest verkin á sýningunni voru unnin á Íslandi, þar sem tvíeykið skrásetti bráðnandi ís, fléttað bræðsluvatn og síbreytilegt landslag með bæði kyrrmyndum og hreyfimyndum. Stærra verkefni þeirra nær einnig til ferða að jöklum í Frakklandi, Noregi og víðar.
Listamennirnir:
Elmar Janse: The Glacier Project — Elmar Janse
Merel Klomp: HOME — MEREL KLOMP
Viðburður á facebook síðu þjóðgarðsins: https://fb.me/e/cKlOWYXhg
Vefur þjóðgarðsins: Ljósmyndasýning │The Glacier Project - Snæfellsjökulsþjóðgarður
Opnun: Föstudaginn 13. mars kl. 16:00.
Staðsetning: Þjóðgarðsmiðstöð Snæfellsjökulsþjóðgarðs á Hellissandi.