Opinn kynningar- og umræðufundur um árspassa í þjóðgarðinn

Má bjóða þér að taka þátt í að móta árspassa í Snæfellsjökulsþjóðgarð?

Í framhaldi af málþinginu um gjaldskyldu á ferðamannastöðum sem Snæfellsjökulsþjóðgarður hélt í febrúar er boðað til opnar kynningar- og umræðufundaraðar um Snæfellsnes. Fundaröðin er í tengslum við RETURN verkefnið sem Rannsóknarmiðstöð ferðamála heldur utan um.

Hér gefst tækifæri til að hafa áhrif á þróun nýs árspassa í Snæfellsjökulsþjóðgarð, eiga samtal um gjaldskylduna yfir léttum veitingum.

Fundarstaðir eru eftirfarandi:

19. maí – Breiðablik í Eyja- og Miklaholtshreppi

19. maí – Nesbrauð í Stykkishólmi

21. maí – Sögumiðstöðin í Grundafirði

21. maí – Þjóðgarðsmiðstöðin á Hellissandi kl. 15:00. Sjá viðburð á Facebook.

Dagskrá:

  • Hlédís Sveinsdóttir framkvæmdastjóri Svæðisgarðs Snæfellsnes opnar.
  • Ragnhildur Sigurðardóttir þjóðgarðsvörður Snæfellsjökulsþjóðgarðs kynnir tillögur að árspassa í þjóðgarðinn.
  • Guðrún Þóra Gunnarsdóttir og Johannes Welling frá Rannsóknarmiðstöð ferðamála (RMF), segja frá Return-verkefninu sem fjallar um ferðamannaskatta og gjöld.
  • Umræður.

Öll velkomin!